| Hæ hó!!! |
| Ég heiti Tómas Orri og kom í heiminn þann 21. apríl 2006 kl. 9:47. Það er búið að læsa albúmi og vefdagbók á síðunni, og lykilorðið er fæðingarbær pabba míns. Eins er velkomið að senda póst til að fá orðið. |
|
|
Um mig:
Ég var sóttur með keisaraskurði og var 17,5 merkur (4.320 g) og 52 cm við fæðingu. Ég er ótrúlega sætur og fæddist með heilan helling af dökku hári.
Ég á tvo eldri bræður, þá Daníel Breka og Kristján Pétur , sem eiga líka heimasíður hérna á barnalandi, og foreldra sem heita Barði Halldórsson og Hólmfríður Kristjánsdóttir. Hérna fyrir neðan sérðu mynd af mér með bræðrum mínum |
|
|
Annað:
Ég er orðinn leikskólastrákur og finnst það ótrúlega gaman :-)
Ég er á leikskólanum Undralandi, eins og Kristján Pétur stóri bróðir. Daníel Breki var líka þar einu sinni. Líf Ljós í myrkri, langt og mjótt markar upphafið hjá þér. Allt í einu ertu komin inní heiminn, lítil dofin. Dregur andann hið fyrsta sinn Þú ert vorið, vindur hlýr vekur hjá mér nýja kennd. Og ég græt í gleði minni, þú gefur mér með návist þinni svo miklu meira en trúði ég Líf ljómi þinn er skínandi skær. Líf augu þín svo saklaus og tær. Fegurra en nokkuð annað. Áhrifin ótvíræð: ég svíf því ég á þetta líf Óskadraumur ásýnd þín. Ekkert jafnast á við það. Þó mig þúsund drauma dreymi þessa stund ég alltaf geymi í mínu sinni ókomin ár Líf ljómi þinn er skínandi skær. Líf augu þín svo saklaus og tær. Fegurra en nokkuð annað. Áhrifin ótvíræð: ég svíf því ég á þetta líf |
| Þú ert gestur nr. 9909 |